Markmišin

Markmiðin

2015–markmiðin eru raunhæf og tímasett markmið, ætluð til hjálpar í baráttunni gegn fátækt, hungri, sjúkdómum, ólæsi og mismunun gegn konum. Þau eru niðurstaða alþjóðlegs samkomulags sem samþykkt var á Þúsaldarfundi Sameinuðu þjóðanna í september árið 2000 af leiðtogum ríkja heims.

Markmiðin eru átta og samhliða þeim eru nokkur undirmarkmið eða áfangar sem ætlaðir eru sem nokkurs konar framkvæmdaáætlun til leiðbeiningar um hvernig uppfylla á 2015–markmiðin. Þú getur valið úr 2015–markmiðunum hér að neðan og lesið um hvað áunnist hefur á þeim sviðum.

2015–markmiðin átta eru:

1.Að eyða fátækt og hungri.

  • Fækka á um helming því fólki sem býr við örbirgð um helming á tímabilinu 1990 til 2015.
  • Fækka á um helming því fólki sem þjáist af hungri á sama tímabili.


2.Öll börn njóti grunnskólamenntunar árið 2015.

  • Tryggja á að bæði stúlkur og drengir ljúki grunnskólanámi.


3.Vinna skal að jafnrétti kynjanna og styrkja frumkvæðisrétt kvenna.

  • Eyða á kynjamisrétti til skólagöngu í grunn- og framhaldsskólum, helst fyrir árið 2005, og á öllum skólastigum fyrir 2015.


4.Lækka á dánartíðni barna.

  • Lækka á dánartíðni barna undir fimm ára um tvo þriðju á tímabilinu 1990 til 2015.


5.Vinna skal að bættu heilsufari kvenna.

  • Lækka á dánartíðni vegna vegna þungunar eða barnsburðar um þrjá fjórðu á tímabilinu 1990 til 2015.


6.Berjast á gegn alnæmi, malaríu og öðrum sjúkdómum sem ógna mannkyninu.

  • Snúa á við útbreiðslu eyðni, malaríu og annarra sjúkdóma fyrir árið 2015.

7.Vinna skal að sjálfbærri þróun.

  • Hrinda á ríkjaáætlunum um sjálfbæra þróun í framkvæmd, helst fyrir árið 2005, og snúa þannig við neikvæðri þróun umhverfisáhrifa fyrir árið 2015.
  • Lækka á um helming hlutfall þeirra sem ekki hafa aðgang að öruggu neysluvatni og fullnægjandi hreinlæti á tímabilinu 1990 til 2015.
  • Fyrir árið 2020 skulu lífsskilyrði a.m.k. 100 milljón íbúa í fátækrahverfum stórborga hafa batnað.


8.Styrkja á hnattræna samvinnu um þróun.

  • Vinna á frekar að opnu og sanngjörnu viðskipta- og fjármálakerfi sem byggir á skýrum reglum.
  • Taka skal á málefnum fátækustu þróunarríkjanna, m.a. með því að leggja af innflutningsgjöld og kvóta á útflutningsvörur þeirra, leysa skuldabyrði ríkjanna með lækkun skulda, og með auknum framlögum til opinberrar þróunaraðstoðar.
  • Taka á tillit til sérstöðu landluktra ríkja og smárra eyríkja.
  • Vinna á með lyfjaiðnaðinum að því að veita fátækum ríkjum aðgang að mikilvægum lyfjum.
  • Vinna á að því ásamt einkageiranum að veita þróunarríkjum aðgang að nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni.


Þú finnur bakgrunnsupplýsingar um 2015–markmiðin hér

Til baka á forsíðu