Framlag Íslands

Þróunarsamvinna Íslands hefur vaxið og eflst í takt við alþjóðlegt umhverfi þróunarsamvinnu og er nú einn af hornsteinum íslenskrar utanríkisstefnu. Stjórnvöld hafa sett það markmið að framlögin fari stigvaxandi á næstu árum. 2015–markmið Sameinuðu þjóðanna [Þúsaldarmarkmiðin] sem samþykkt voru á 55. allsherjarþingi SÞ haustið 2000 eru það leiðarljós sem aðildarríkin nota við stefnumörkun í þróunarsamvinnu og er Ísland þar á meðal.

Markmið þróunarsamvinnu er að útrýma fátækt og hungri, bæta heilsufar, vinna að jafnrétti kynjanna, menntun og umhverfisvernd og stuðla að hnattrænni samvinnu um þróun. Með stuðningi við alþjóðastofnanir og samstarfi við þróunarríki vinna íslensk stjórnvöld að fjölbreyttum verkefnum sem eiga það sameiginlegt að stuðla markvisst að framgangi 2015–markmiðanna.