Hvernig get ég hjálpað?
Fátækt í heiminum er oft lýst sem varanlegu ástandi — hræðilegu og sorglegu, en ástandi sem ekki fæst breytt. Þetta er langt frá því að vera satt. Það er erfitt að sjá fyrir eða koma í veg fyrir náttúruhamfarir, en algerri fátækt er hægt að berjast gegn og uppræta.
Við höfum bæði fjármagn og tækni, til þess að ná 2015–markmiðunum. Það sem á skortir er vilji og framkvæmdakraftur. Fæstum stjórnmálamönnum og fulltrúum stjórnvalda stendur á sama um skoðanir almennings. Til að geta haft áhrif á stjórnmálamenn, svo að þeir standi við loforð sín, er mikilvægt að auka þekkingu fólks á 2015–markmiðunum. Það þarf ekki að vera flókið. Þú getur:
* Talað við vini þína og fjölskyldu um þessi mikilvægu mál, og aukið þannig vitneskju um markmiðin.
* Boðið vinum þínum í kvöldmat og rætt um markmiðin.
* Boðið fyrirlesara í skólann eða á vinnustaðinn til að fræða ykkur um 2015–markmiðin.
* Valið að versla umhverfisvænar vörur og vörur þar sem tryggt er að framleiðendur í þróunarríkjunum fá sanngjarnt verð fyrir [„fair trade“].
* Skráð þig í samtök og tekið þátt í sjálfboðastarfi sem tengist 2015-markmiðunum.
* Tekið þátt í starfi stjórnmálaflokka, og haft áhrif á málefni sem þér þykja mikilvæg.
* Tekið þátt í starfi stéttarfélags.
* Rætt við sveitarstjórnarmenn og aðra sem gegna ábyrgðarstöðum í heimabyggð.
* Skrifað þingmönnum bréf eða sent tölvupóst.
Heimilisfang: Alþingi, 150 Reykjavík.
Netföng alþingismanna: http://www.althingi.is/vefur/addr-s.html?teg_starfs=A.
* Skrifað þingnefndum sem fjalla um mál sem tengjast 2015–markmiðunum.
* Skrifað greinar og birt efni í fjölmiðlum, svo sem stuttmyndir á netinu.
* Gefið fréttamönnum ábendingar um mikilvæg málefni.
* Tekið þátt í umræðum á netinu og komið 2015–markmiðunum á framfæri.
Ef þú hefur ábendingar um hvað eina sem hægt væri að gera til að vekja athygli á 2015–markmiðunum eða vilt segja frá því sem þú hefur gert, sendu tölvupóst á felag@un.is.